Okei ég er að bilast !!!Berglind Björk Viðarsdóttir
Okei ég veit ekki hvað er að mér ég er geðveikt týnd eitthvað núna og ég er að bilast á þessu !!! Ég hata að vera svona! síðan er það að vera á lausu þá leiðist manni alltaf nema um helgar! ef marr er að djamma ég er komin með ógeð af þessu það er liggurvið ekki hringt í mann nema bara um helgar !! Gerir fólk ekkert hérna í eyjum á virkum dögum eru bara allir DAUÐIR... það mætti allavega halda það. Sorry ég er ekki að skíta yfir einn né neinn. Mér bara leiðist geðveikt og langar til þess að komast héðan ég er ekki að grínast! mikið byrjuð að hugleiða að reyna að fara uppá kárahnúka í 2-3 mánuði borga upp skuldirnar mínar og flytja eitthvert... vona bara að annaðhvort fari þetta að lagast eða eitthvað spennandi gerist í lífi mínuKolla mig hlakkar geggjað til þegar þú kemur! Síðan er líka það að marr er ekki á bíl og ég er ekki týpan sem nennir að labba eða hjóla í brjáluðu roki og eitthvað og það heftir mann alveg geðveikt það eiga svo margir heima einhversstaðar lengst útí raskati frá mér...
En allavega marr hefur þó vinnu og það er einhver félagsskapur sem er fínt
En allavega þurfti bara aðeins að blása út hérna því ég hef engann annann til þess að gera það við
Ciao B.Bj.
Jæja þá er nýr dagur :DBerglind Björk Viðarsdóttir
Jæja þá er nýr dagur í dagEn allavega að þá ætla ég að byrja í þessu mataræði aftur og líta ekki á þetta sem megrun eða að ég sé að gera þetta bara til þess að grennast. því þá gefst marr upp strax eins og ég gerði
En ég ætla að byrja að blogga aftur á fullu því ykkar stuðningur er mér mikilvægur
B.Bj.
OOOJJJJJ barasta!Berglind Björk Viðarsdóttir
Jæja þá eru páskarnir búnir og mín var ekki í DDV !!En gangi ykkur vel í ykkar átaki
B.Bj.
Æji takk æðislega!Berglind Björk Viðarsdóttir
Hæhæ takk æðslega fyrir commentin! Ég hrasaði en finn samt að mér líður ekki vel ! Þannig að ég ætla að taka alla þessa óhollustu út, ég er að fara til eyja á morgunn og ég ætla að taka viktina með mér! Kanski að ég geri bara svona eins og ladyxxl og borða bara 600 gr yfir daginn... allavega að byrja á því og sjá, ég á mikið auðveldara með það, því mér finnst t.d. hrámareneraðar rófur mjög góðar með eplaediki og tarmari sósu. Ég ætla að byrja á þvíEn gangi ykkur öllum vel um páskana og við skulum ekki missa okkur í einhverja óhollustu !
Endilega kíkið á þetta, ég fékk soldið spark í rassinn ! hvaða aðferð sem marr notar við að borða hollann mat þá grennist marr ekki ef marr ætlar alltaf að vera narta í smá kex eða einhvað súkkulaði af og til... en kíkið á þetta : http://islenskt.is/?webID=1&i=4
B.Bj,
DaddarraddadaBerglind Björk Viðarsdóttir
Hæhæ jæja ég er að reyna að tóra hérna í þessu prógrammi... er samt ekki alveg að ganga sko... mér finnst alltaf jafnerfitt að borða þetta allt og þessháttar... síðan ætla ég að fara í viktunina í dag og sjá... þá læt ég ykkur vita hvort ég haldi áfram.. annars kemur þetta bara allt í ljós... en allavega er að gefast upp...B.Bj.
Komin með ÓGEÐ af grænmetiBerglind Björk Viðarsdóttir
Jæja ég byrjaði daginn á því að fara í body step sem er bara snilldar tímar sko er ekki búin að fara í body step í marga mánuði sko pottþétt að mæta aftur á miðvikudaginn ! Ég hef ekki brennt svona lengi síðan ég veit ekki hvenar... ég get ekki haldið stanslausri brennslu í 45-60 mínutur á bretti eða hjóli eða einhverju... en anyway ætlaði að reyna gera þennann dag að 100% DDV degi... en hvað þið sjáið það í matardagbókinni minni að svo var ekki...En ég ætla að reyna allavega að borða eitthvað grænmeti með matnum, og ég ætla að setja baunir í bleiti svo ég þurfi ekki líka að borða kjöt eða fisk í hádeginu á morgunn, þá get ég fengið mér bara salat eða eitthvað...
En fyrir utan kvöldmatinn þá var ég bara nokkuð góð í þessu kláraði mjólkurskammtinn minn og ávaxtaskammtinn í eftirrétt yfir O.C. sem er bara algjört æði fékk mér piparminntusúkkulaiði yfir (ddv vænt) og vanillujógúrt...
jammíjamm...
Verið dugleg að segja mér hvað þið gerið við allt þetta grænmeti...
B.Bj.
Ræktin í dagBerglind Björk Viðarsdóttir
Jæja ég byrjaði daginn í dag að fara í ræktina og fór að hjóla í 20 mín og síðan fór ég að lyfta með löppunum, sem gengur aðalega útá brennslu og að tóna vöðvana, því ég er með vöðvana er búin að vera æfa í meira en ár samfleytt fyrir utan veikindi... en í gær ákvað ég að fá mér smá bjór...En endilega verið dugleg að skrifa í gestabókina og svona svo marr fái smá stuðning
Og látið mig vita hvort ég megi setja ykkur inná síðuna mína svo ég og aðrir getum skoðað hana og endilega setjið síðuna mína inná ykkar
En gangi ykkur vel í ykkar átaki !
Bæbæ
Hrasaði aðeins útaf...Berglind Björk Viðarsdóttir
Hæhæ dagurinn er búinn að vera ágætur, þannig lagað séð, nema ég datt aðeins útaf sporinu... en það er ekkert til þess að brjóta sig niður fyrir! Það er bara að halda áfram á morgunn... ég ætla að vera búin að missa 5 kg áður en ég fer út og þá verð ég nú líka að standa mig...En annars var ég bara að koma af Ice age 2 hún var algjör SNILLD!! verðið að sjá hana ef ykkur langar til þess að hlægja
Síðan var ég að prufa svona nammi gott sem marr getur fengið sér á kvöldin yfir sjónvarpinu eins og t.d. smá brytjaðann banana, jarðaber og smá bláber og súkkulaði sósu yfir með piparmyntu bragði (sem ég bjó notla bara til sjálf sem er alveg hollt)
Hann kallar allt hollt heilsuspillandi.. hehehehehe
En nóg komið þetta er bara búinn að vera æðislegur dagur í dag en síðan er bara tekið harkalega á því og koma sér almennilega að stað í DDV því marr verður að grennast aðeins svo manni líði nú vel í bikiníinu sínu þarna úti
Endilega verið dugleg að adda mér inn hjá ykkur og látið mig vita hvort ég megi ekki adda ykkur inn hjá mér (mundið að skrifa addressið)
Bið að heilsa í bili
B.Bj.
Viktunin í dagBerglind Björk Viðarsdóttir
Jæja þá var það viktunin í dag... er nokkuð sátt bara get ekki verið annað... ég byrjaði semsagt á mánudaginn en er ekki búin að vera í þessu 100% heldur kanski 60-70% þannig að... útkomman var sú að ég léttist um 1,1 kg... þannig að það eru bara 6,9 kg í mína kjörþyngd og ég ætla að reyna að ná henni áður en ég fer út... sem er kanski soldið hæpið en ætla að reyna... og þá þýðir það líka að ég verð að gera þetta 100% sko það þýðir ekkert annað! Þannig að dagurinn á morgunn byrjar og verður 100% og dagarnir eftir það verða það líka... ég ætla að hafa það markmið að ná heilli viku 100% svo ég geti nú keppst við sjálfa mig aðeinsEndilega verið dugleg að skrifa í gestabókina og commentin og svona og látið vita af ykkur hvort ég megi ekki setja ykkur inná síðuna mína svo ég geti nú orðið fastagestur og stutt ykkur í ykkar átaki
ég kíki hring í kvöld og skoða hvernig hefur gengið...
Kveðja B.Bj.
DDV dagur nr. 2...Berglind Björk Viðarsdóttir
Jæja þá er dagur nr "2" að taka enda... ég er búin að vera frekar dugleg að reyna borða allt þetta magn... en það gengur frekar ílla með kjötið og fiskinn og soleiðis því ég er ekkert það mikil kjöt manneskja og borða bara kjöt og fisk í kvöldmat vegna þess... en ég á enn eftir að fara á "fyrsta" fundinn og fá nánari upplysingar um þetta... ég fékk að skrá mig síðasta fimmtudag og er því búin að reyna fara alveg eftir minni bestu getu... NEMA.... ég er að baka mér peru og bananaböku núna sem er alveg holl og allt það en veit ekki alveg hvort hún sé ddv væn... en marr verður að reyna að trappa sig niður á þessu sykur áti með einhverju... því ég finn ekki góð jarðaber, bláber né vínber og mér finst mjög gott og narta í þannig lagað á kvöldin ef mig langar í eitthvað, þessvegna bakaði ég mér bara núna...B.Bj.
